"Ţetta verđur betra ţegar ég verđ fullorđin"Jazzy Bulp

Þegar ég var yngri og vitlausari og lífið allt í flækju, að ég hélt, þá huggaði ég mig við það að lífið yrði betra og einfaldara þegar ég yrði fullorðin.
Það gæti ekki verið að fullorðnir væru að burðast um með vandamál heimsins á herðum sér, að ástarmálin væru einfaldari og skýr, fjármálin væru einfaldari en a-b und alles.
En viti menn, þetta lagast ekki þegar maður verður stór.

Hoppið fram af kletti strax, there's no hope, ekki draga þetta á langinn ... :þ

Hver ţarf eiginlega bjór ...Jazzy Bulp

... þegar hann hefur kaffi!


Elska lífið, elska alla, nema suma.
Langar í sumarfrí, langar í fleiri skó, langar í meira kaffi.

SunnudagshugleiđingarJazzy Bulp

Ég hef afrekað það í dag að skúra, koma mér í sturtu og aðeins betra ástand en ég var í þegar ég vaknaði í morgun. Ástæðan fyrir þessari miklu orku var óhemju slæmt tilfelli af Þynnkus Alcaholus og er þetta því miður oft fylgifiskur þess ástands í mínu tilfelli.

Anyaways, ég fór á Tunglið, það voru 5 þar inni ef maður telur staffið og DJ'ana með. Afrekaði að verða ofurdrukkin sem ég skil ekki alveg, því ég drakk ekki mikið né hratt. Gerði drunk dialing í nokkra vel valda aðila, drunk sms í nokkra aðra aðila og geng því um með hauspoka í dag af skömm.

Kaffi er gott.

Skór og kaffiJazzy Bulp

Undanfarna mánuði hef ég gerst kvenlegri en ég hef áður verið.
Nýtt áhugamál hjá mér eru skór, ég elska skó og á orðið ógrynni af allskyns skóm sem ég hef sankað að  mér, eru þeir farnir að hlaupa á tugum para núna.
Ég geri mikið af því að skoða skó, hugsa um hvaða skó mig langi í, og hugsa líka pínu um skóna sem ég á.

Mér líkar ekkert sérstaklega vel við þetta nýja áhugamál mitt, mér finnst það yfirborðskennt og dýrt að auki. En mér er sagt að þetta sé með öllu ólæknandi ástand þannig að ég bara neyðist til að þjást af þessu til æviloka.

Svo er ég líka orðin smá fullorðins, ég er farin að drekka kaffi á hverjum degi.

BloggpásaJazzy Bulp

Eins og glöggur lesandi minn hefur tekið eftir þá er ég í bloggpásu.

Adjö

Date og sćtir strákarJazzy Bulp

Ég datt aldeilis í lukkupottinn í gærkvöldi þegar 2 stórmyndarlegir drengir buðu mér út að borða og í bíó.
Haldið var í Smáralind og borðað á TGI Friday's af miklum móð og nutum þess innilega að hlusta á einhverja jólasveina kyrja jólasöngva í botni á meðan við sátum þarna á 2 manna borði (smá flugvélafílingur við borðhaldið).
Svo var haldið í Debenhams, og ætlunin var svo að fara í bíó .. en herrarnir mínir voru orðnir svo þreyttir að við ákváðum að fara bara í bíó í dag í staðinn.

Ég fór óguðlega snemma að sofa í gær og er þessvegna vöknuð á óguðlegum tíma, ætti með réttu að vera steinsofandi á mínu græna eyra núna, geri tilraun til þess á eftir ef aðstæður leyfa.

Þetta var leiðindablogg á sunnudegi .. njótið vel.

Lífiđ í SódómuJazzy Bulp

Maður verður víst stundum að éta ofan í sig stór orð.
Ég er flutt til Reykjavíkur eftir að við Kristján ákváðum að tími væri kominn til að leiðir okkar skildust að, er búin að vera hérna í 3 vikur og líkar ágætlega.

Eins og heiðvirðu fólki sæmir er ég komin með vinnu og stunda hana af krafti og er bara að fíla þetta nýja líf ágætlega að mestu leiti.

Ég er ekki frá því að smá jólakvíði sé farinn að láta kræla á sér, hef aldrei verið mikið jólafan.

OMG OMG!!Jazzy Bulp

Ég týndi nærbuxunum mínum á McDonalds í London.

Ef einhverjir fleiri hérna hafa lent í því þá endilega hafið samband svo við getum stofnað klúbb.

Ég á litla ormaJazzy Bulp

Ótrúlegt að mér hafi tekist að eignast svona falleg börn

.

DJÖFULL!Jazzy Bulp

Ég var búin að blogga ógeðslega mikið og það datt út, hata þetta ógeð og er farin í fýlu.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Jazzy Bulp

Könnun

Finnst ţér gaman ađ taka ţátt í óvísindalegum bloggkönnunum?